Mánaskel
Við köllum þennan stundum „litla risann“ því Mánaskelin er lítill pottur sem rúmar þó ótrúlega vel íslenska vísitölufjölskyldu.
- Mánaskelin dregur nafn sitt af óvenjulegri en fallegri lögun.
- Hægt er að koma henni fyrir við ýmsar aðstæður vegna hins óvenjulega forms.
- Mánaskelin hentar mjög vel þar sem heitt vatn er takmarkað.
- Maður fyllir Mánaskel á 12-15 mínútum við venjulegar aðstæður. Það er nánast eins og að fylla baðkar.
- Mánaskelin er til í flestum litum og með mismunandi áferð.

Stærð 2.42×1.63m

Rúmmál 750 lítrar

4 manns
Upplýsingar
Potturinn kemur tilbúninn til tengingar, þ.e. komið er niðurfall, tenging fyrir inntak og tvo yfirföll.
Að auki eru potturinn einangraður með úrítani og Bláskel, Mánaskel og Ölduskel koma á fótum.
Leiðbeiningar
Frekar upplýsingar um uppsetningu og góð ráð má finna á Leiðbeiningasíðunni. Þar er meðal annars hægt að finna bækling sem þú færð með heita pottinum.
Aukahlutir
Bættu við aukahlutum til þess að móta pottinn að því sem hentar þér bestHitastýring
Allir heitir pottar verða að hafa hitastýringu
Við bjóðum uppá þrjár gerðir af hitastýringu. Sjá Hitastýringar í netversluninni.

Vatnsnudd
Njóttu þess að láta nudda þig í heita pottinum
Bættu vatnsnuddi við pottinn og með einum takka eru komin með nudd beint í pottinn þegar þér hentar. Hægt er að fá alla heitu pottana okkar með tveimur uppsetningum á vatnsnuddi:
4 stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
6 stúta – Kemur tilbúið ísett með nudddælu, tengiboxi og starthnappi
Ljós
Þægileg lýsing á dimmum vetrarkvöldum
Ljós í pottinum er frábær viðbót á dimmum vetrarkvöldum og myndar skemmtilega lýsingu þegar að farið er að rökkva. Í stað þess að vera með útiljós kveikt er hægt að vera mleð notalega stemmningu í pottinum sjálfum með ljósin innbyggð í pottinn.

Ljós fyrir pott
Einangrað lok
Létt og meðfærilegt
Lok
Verðu pottinn og verndaðu aðra
Gott er að geta lokað pottinum til að forðast að óhreinindi fjúki í hann á meðan hann er að fylla sig eða þegar er ekki verið að nota hann.
Þegar börn eru að leik kringum pottinn er kostur að geta lokað honum þannig að enginn hætta sé á að smáfólkið detti ofan í hann. Ávallt er mikilvægt að sýna aðgát þar sem börn eru að leik og tryggja að potturinn sé þeim ekki slysagildra.